49. fundur
utanríkismálanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, miðvikudaginn 1. júní 2016 kl. 19:10


Mættir:

Hanna Birna Kristjánsdóttir (HBK) formaður, kl. 19:10
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG) 1. varaformaður, kl. 19:10
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) 2. varaformaður, kl. 19:10
Elín Hirst (ElH), kl. 19:10
Frosti Sigurjónsson (FSigurj), kl. 19:10
Karl Garðarsson (KG), kl. 19:10
Óttarr Proppé (ÓP), kl. 19:10
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 19:10
Össur Skarphéðinsson (ÖS), kl. 19:10

Silja Dögg Gunnarsdóttir þurfti að víkja af fundi kl. 19:15 vegna annarra þingstarfa en kom á fund kl. 21:30.
Fundi nefndarinnar var frestað kl. 20:10 og framhaldið kl. 21:30.

Nefndarritari: Hildur Eva Sigurðardóttir

1731. fundur utanríkismálanefndar.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 19:10
Frestað.

2) 788. mál - viðbótarsamningur við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Svartfjallalands (Montenegró) Kl. 19:10
Formaður lagði til að málið yrði afgreitt. Var það samþykkt af meiri hluta viðstaddra en Steinunn Þóra Árnadóttir sat hjá við afgreiðslu málsins. Að nefndaráliti meiri hlutans standa Hanna Birna Kristjánsdóttir, form. frsm., Karl Garðarsson, Vilhjálmur Bjarnason, Frosti Sigurjónsson, Elín Hirst, Óttarr Proppé, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Össur Skarphéðinsson. Silja Dögg Gunnarsdóttir var fjarverandi en ritar undir álit þetta samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.
Að nefndaráliti minni hlutans stendur Steinunn Þóra Árnadóttir.

3) 23. mál - samstarf Íslands og Grænlands Kl. 19:26
Formaður lagði til að málið yrði afgreitt. Var það samþykkt. Að nefndaráliti með breytingartillögu standa Hanna Birna Kristjánsdóttir, form. frsm., Karl Garðarsson, Vilhjálmur Bjarnason, Frosti Sigurjónsson, Elín Hirst, Óttarr Proppé, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir, Össur Skarphéðinsson. Silja Dögg Gunnarsdóttir var fjarverandi en ritar undir álit þetta samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

4) 68. mál - alþjóðlegt bann við framleiðslu og beitingu sjálfvirkra og sjálfstýrðra vígvéla Kl. 19:35
Formaður lagði til að málið yrði afgreitt. Var það samþykkt. Að nefndaráliti með breytingartillögu standa Hanna Birna Kristjánsdóttir, form., Óttarr Proppé frsm., Karl Garðarsson, Vilhjálmur Bjarnason, Frosti Sigurjónsson, Elín Hirst, , Silja Dögg Gunnarsdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir, Össur Skarphéðinsson. Silja Dögg Gunnarsdóttir var fjarverandi en ritar undir álit þetta samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

5) 784. mál - þjóðaröryggisráð Kl. 19:45
Nefndin ræddi málið. Formaður frestaði fundi kl. 20:10 en honum var framhaldið 21:30. Formaður lagði þá til að málið yrði afgreitt. Var það samþykkt. Að nefndaráliti með breytingartillögu standa Hanna Birna Kristjánsdóttir, form. frsm., Karl Garðarsson, Vilhjálmur Bjarnason, Frosti Sigurjónsson, Elín Hirst, Óttarr Proppé, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir, Össur Skarphéðinsson.

6) Önnur mál Kl. 21:35
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 21:35